Skip to product information
1 of 3

ARK Therapeutic

ARK® - Nagstönglar

ARK® - Nagstönglar

Regular price 2.990 kr
Regular price Sale price 2.990 kr
Útsala Uppselt
Tax included. Shipping calculated at checkout.
Litur

Nagtannstönglarnir eru þynnsta nag varan frá ARK og mælast þeir 0,7 cm á breidd og 10 cm á lengd. Vegna þess hversu nettir tannstönglarnir eru þá henta þeim sem eru meðal nagarar. Henta ekki þeim sem eru vanir að naga hluti í gegn.  


  • 3 saman í pakka.
  • Hentar þeim sem vilja naga í "laumi".
  • Mælt með fyrir 13 ára og eldri.
  • ARK nagvörur koma í þremur mismunandi styrkleikum.
  • ARK vörurnar eru BPA, Latex, PVC, Phtahalate og blý fríar.  
  • Má bæði þvo venjulega með sápu eða setja í uppþvottavél.
  • Vörurnar endast gífurlega vel.
  • Munnörvun fyrir þá sem hafa þörf á að hafa eitthvað upp í sér.
  • Örugg leið til að naga í staðinn fyrir að naga, hendur, hnúa, flíkur eða annað.
  • ARK vörurnar eru hannaðar og framleiddar í USA og eru búnar til úr efni sem mætir öllum kröfum FDA (lyfja og matvælaeftirliti Bandaríkjanna)
Standard - Mjúkt og eftirgefanlegt
Þetta er mýksta stigið í öllum nagvörunum frá ARK. Það er mjúkt og hægt er að sökkva tönnunum í það. Mælt með standard fyrir þá sem eru ekki vanir að naga í gegnum hluti. Ef þú ert ekki viss um hvaða þéttleiki hentar þá er best að byrja á þessum.
XT “Xtra Tough - Miðlungs
Þetta er miðju stigið. Það er þéttara en samt eftirgefanlegt og seigt. Ef fara á milliveginn í vali á þéttleika þá er þetta góður kostur. Mælum með þessu fyrir þá sem eru meðalnagarar og eiga það til að naga stundum hlutina í gegn.
XXT “Xtra Xtra Tough” - Þétt
Þetta er þéttasta/harðasta stigið. Það er mjög þétt og veitir mikið viðnám. Mælt er með XXT fyrir þá sem eru vanir að naga í gegnum hluti. Þótt engar nagvörur séu óslítandi þá er XXT það sem endist lengst fyrir þá sem naga mest.



Varúð: Þrátt fyrir að vörurnar séu gerðar úr sterku efni þá eru þær ekki óskemmanlegar.  Sumir einstaklingar með sterka og mikla nagþörf geta bitið í gegnum vöruna. Vinsamlegast fylgist með þegar verið er að nota vöruna og skiptið henni út ef varan sýnir merki um slit eða skemmdir.



View full details