Æðisleg bók með Tangle® flækju. Í bókinni eru yfir 100 leiðir til að nota flækjuna til að auka einbeitingu og fókus.
Flækjuna er hægt að nota í margt, bæði sem þjálfunartól og eitthvað til að fikta í . Hún er í hentugri stærð og passar vel í vasa.
Snilld að hafa í bílnum fyrir fiktara sem verða eirðarlausir.
Flækjana örvar bæði sjón og snertingu og þjálfar fínhreyfingar.
Erfitt að leggja frá sér þegar maður hefur tekið hana upp.
Hentar mjög vel fyrir einstaklinga með skerta skynjun, ADHD og einhverfu.
ATH. hægt er að taka flækjuna í sundur í nokkra minni hluta og því þarf að gæta að einstaklingum sem eiga það til að stinga upp í sig (og gleypa hluti).
Flækjan er ekki ætluð börnum yngri en 3 ára.